Bráðabirgðaútgáfa.

152. löggjafarþing — 89. fundur,  14. júní 2022.

breyting á ýmsum lögum í þágu barna.

530. mál
[00:44]
Horfa

Frsm. velfn. (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti velferðarnefndar með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið gesti á sinn fund og farið yfir þær umsagnir sem bárust um málið.

Meginmarkmið frumvarpsins er að skapa umgjörð í lögum sem stuðlar að því að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Markmiðið er m.a. að afnema lagalegar hindranir sem geta komið í veg fyrir samstarf um veitingu þjónustu í þágu farsældar barna. Frumvarpinu er ætlað að skapa skilyrði til að bregðast fyrr við tilteknum aðstæðum eða erfiðleikum í lífi barns með viðeigandi stuðningi þegar þörf þykir.

Frumvarpið er liður í umfangsmiklum breytingum sem samþykktar voru á síðasta löggjafarþingi sem stefna að aukinni farsæld barna og barnafjölskyldna með því að bæta snemmtækan stuðning við börn og auka samvinnu þeirra sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.

Flestir umsagnaraðilar eru jákvæðir gagnvart frumvarpinu og gera ekki efnislegar athugasemdir við það. Leggja þeir áherslu á mikilvægi þess að frumvarpið verði samþykkt til að styðja við þær miklu og góðu breytingar sem lög um samþættingu í þágu farsældar barna kalla á.

Flestir umsagnaraðilar voru jákvæðir gagnvart frumvarpinu og gera ekki efnislegar athugasemdir við það. Leggja þarf áherslu á að frumvarpið verði samþykkt til að styðja við þær miklu og góðu breytingar sem lög um samþættingu í þágu farsældar barna kalla á.

Í einni umsögn eru gerðar athugasemdir við frumvarpið, einkum út frá því að það taki ekki nægt tillit til fjölbreyttra fjölskyldumynstra. Er þar vísað til þess að frumvarpið skerði að einhverju leyti möguleika foreldra á að bera sameiginlega ábyrgð á að ala upp barn, sbr. t.d. 18. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í umsögninni eru lagðar til breytingar á 6. gr. frumvarpsins þar sem lagt er til að fjallað verði um skyldur sveitarfélaga til að veita félagsþjónustu út frá foreldrum barnsins.

Nefndin leggur sérstaka áherslu á að í 6. gr. frumvarpsins er vísað til ákvarðana um félagsþjónustu sveitarfélaga fyrir framfærendur barna. Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga mæla fyrir um að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt barnalögum bera báðir foreldrar framfærsluskyldu gagnvart barni sínu, auk þess sem í lögum er fjallað um framfærsluskyldu stjúp- og sambúðarforeldra þótt framfærsluskylda sé í barnalögum útfærð með mismunandi hætti eftir því hvaða stöðu foreldri hefur gagnvart barni. Nefndin telur því ótvírætt að 6. gr. frumvarpsins taki til ákvarðana um félagsþjónustu gagnvart þeim sem fara með framfærsluskyldu gagnvart barni en ekki bara þeim foreldrum sem eru með sama lögheimili og barnið. Fær nefndin því ekki séð að ákvæðið feli í sér hindranir frá því sem nú er varðandi réttindi barna sem búa við fjölbreytt fjölskyldumynstur. Nefndin telur því tillögu umsagnarinnar ekki ná því markmiði að draga fram reglu 3. gr. barnasáttmálans í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Nefndin vill árétta að framangreindar ábendingar umsagnaraðila lúta að þjónustu við börn sem búa á tveimur heimilum og fjölskyldur þeirra. Af því tilefni fékk nefndin upplýsingar um að málefni barna sem búa á tveimur heimilum séu á meðal viðfangsefna stefnumótunar félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Meðal annars fer nú fram vinna innan ráðuneytisins í tengslum við innleiðingu reglna um skipta búsetu þegar kemur að félagsþjónustu og búsetu barna á tveimur heimilum, sérstaklega þegar foreldrar búa hvort í sínu sveitarfélaginu. Nefndin leggur áherslu á að þeirri vinnu verði hraðað eins og kostur er.

Í umsögn umboðsmanns barna koma fram athugasemdir er varða 13. gr. frumvarpsins og telur umboðsmaður að ákvæðið skerði að einhverju leyti þann rétt sem 12. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna tryggir börnum.

Nefndin bendir á að barnasáttmálinn er lögfestur með lögum um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, nr. 19/2013. Í athugasemdum við 13. gr. frumvarpsins kemur fram að ætlunin sé að ákvæðið sé túlkað til samræmis við 12. gr. sáttmálans. Nefndin bendir á að ætlunin sé því ekki að 13. gr. verði túlkuð þrengra eða að réttindi barna séu að einhverju leyti skert með ákvæðinu. Engu síður telur nefndin þörf á að breyta orðalagi 13. gr. og færa það meira til samræmis við 12. gr. sáttmálans.

Undir nefndarálitið rita sú sem hér stendur og hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður velferðarnefndar, Halldóra Mogensen, Orri Páll Jóhannsson og Óli Björn Kárason.