Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 12. fundur,  11. okt. 2022.

Störf þingsins.

[13:40]
Horfa

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ein alvarlegasta birtingarmynd kynjamisréttis er kynbundið ofbeldi. Kynbundið ofbeldi er ekki einstaklingsbundinn vandi heldur samfélagsmein sem er ein mesta ógn við líf og heilsu kvenna. Vændi er ein birtingarmynd þess ofbeldis. Vændi á Íslandi er staðreynd. Þótt sífellt háværari raddir kalli á lögleiðingu vændis eru engar vísbendingar um að það hjálpi þeim konum sem eru brotaþolar vændis. Í nýlegri rannsókn Stígamóta sjáum við vísbendingar um langvinnar og alvarlegar afleiðingar vændis, m.a. áfallastreituröskun, þunglyndi, kvíða, misnotkun vímuefna og áfengis og sjálfsvígshugleiðingar og tilraunir. Einnig má sjá að tengsl eru milli fátæktar og slakrar félagslegrar stöðu og vændis. Stígamót hafa síðustu áratugi unnið þrekvirki í baráttunni gegn kynferðisofbeldi og hafa hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir baráttu sína og aðferðir.

Forseti. Það þarf að auka þekkingu í samfélaginu á afleiðingum vændis. Með byltingum síðustu ára hefur umræða um kynferðisofbeldi breyst. Áherslan hefur í auknum mæli varpað ljósi á gerendur og ábyrgð þeirra. Þörf er á frekari innlendum rannsóknum sem varpa ljósi á vændiskaupendur, karla sem kaupa vændi, sem rannsóknir sýna að eru yfirgnæfandi meiri hluti gerenda. Ég trúi því að við getum gert betur. Ég trúi því að með betri upplýsingum um afleiðingar vændis á brotaþola fækkum við þolendum og gerendum. Mikilvægt er að standa með banni við kaupum á vændi og efla bæði viðbrögð og frumkvæði lögreglu og dómstóla við brotum á þeim lögum. Líkami manneskju má aldrei vera söluvara. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)