Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 16. fundur, 13. okt. 2022.
um fundarstjórn.
Forseti. Fyrr í dag áminnti virðulegur forseti mig fyrir að nota ekki íslenskt mál í ræðustól. Því langar mig að benda forseta á að í íslenskri nútímamálsorðabók Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum segir að orðið kósí sé íslenskt lýsingarorð sem þýði notalegur eða hlýlegur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)