Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 18. fundur,  17. okt. 2022.

aðgerðir til að treysta innlenda matvælaframleiðslu.

258. mál
[17:04]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Þórarinn Ingi Pétursson) (F):

Virðulegi forseti. Ég beini fyrirspurn til matvælaráðherra um aðgerðir til að treysta innlenda matvælaframleiðslu. Erfiðar aðstæður hafa skapast í okkar nærumhverfi og í Evrópu undanfarna mánuði og í þeim aðgerðum sem þegar hefur verið gripið til af hálfu ríkisvaldsins hefur matvælaráðherra verið í fararbroddi verkefna sem snúa t.d. að því að koma að stuðningi við áburðarkaup til bænda og eins að fylgja eftir tillögum spretthóps sem hæstv. atvinnuvegaráðherra skipaði á vordögum en hann skilaði af sér í júní sl. Því miður virðist staðan vera þannig að við sjáum ekki fram á auðveldari tíma og þægilegri hvað varðar verð á aðföngum til matvælaframleiðslu í ljósi þeirra atburða sem eiga sér stað nú um stundir austur í Evrópu. Mig langar því að eiga samtal við hæstv. ráðherra hvað þetta varðar um það hvort ráðherra hyggist grípa til einhverra frekari aðgerða í ljósi þeirrar stöðu sem við stöndum frammi fyrir til að tryggja enn frekar stöðu matvælaframleiðslu á Íslandi. Ég velti því sömuleiðis upp hvort við getum endurskoðað t.d. tollverndina eða hvort við horfum betur á ytri skilyrði landbúnaðarins hér heima eða þá að farið verði í það að bæta enn frekar stuðning ríkisins til landbúnaðarins.

Þó svo að mjög vel hafi verið staðið að mörgu sem viðkemur viðbrögðum ríkisvaldsins í þessari stöðu þarf meira til til að tryggja stöðuna enn frekar af því að það eru margir þættir sem hjálpast að við að gera framleiðsluna erfiðari. Ég nefni þar sem dæmi hækkun á fjármagnskostnaði og fleira. Fram undan eru verkefni og þau eru verulega krefjandi en mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu hefur sennilega sjaldan eða aldrei verið meira.