Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 32. fundur,  16. nóv. 2022.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hafa borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 299, um meðalbiðtíma eftir búsetuúrræðum, og á þskj. 300, um meðalbiðtíma eftir félagslegri íbúð, báðar frá Evu Sjöfn Helgadóttur, á þskj. 360, um framfærsluviðmið, frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, og á þskj. 376, um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu, þskj. 379, um stöðu fatlaðs fólks við loftslagsbreytingar, og á þskj. 385, um aðgengi fatlaðs fólks að réttinum, allar frá Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur.

Einnig hafa borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 222, um málsmeðferðartíma kynferðisbrotamála, frá Gísla Rafni Ólafssyni, og á þskj. 382, um aðgengi fatlaðs fólks í neyðar- og hamfaraástandi, frá Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur.