Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2022.

Störf þingsins.

[15:38]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Allt frá því að lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir tóku gildi árið 2018 hefur málaflokkurinn verið rekinn með halla og sá hallarekstur er farinn að sliga mörg sveitarfélög. Svo virðist sem kostnaðarmat hafi ekki náð utan um þær breytingar sem voru fólgnar í frumvarpinu og þá þjónustuskyldu sem lögð var á sveitarfélögin. Strax á árinu 2018 var halli upp á tæpa 3 milljarða kr. og hefur síðan vaxið stöðugt. Hann var 5,6 milljarðar árið 2019 og tæpir 9 milljarðar árið 2020. Allt útlit er fyrir að halli hvers árs sé nú orðinn vel á annan tug milljarða.

Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hefur hér í pontu Alþingis haldið því fram að ekki hafi komið fram neinar athugasemdir við kostnaðarmat frumvarpsins þegar það varð að lögum. Þessi fullyrðing ráðherra stenst ekki skoðun. Umsagnir Alþýðusambands Íslands og Reykjavíkurborgar staðfesta t.d. að þessir aðilar voru ekki sammála kostnaðarmatinu sem lagt var til grundvallar og gerðu fyrirvara þar að lútandi. Hæstv. innviðaráðherra hefur nefnt í viðtölum að koma þurfi til móts við sveitarfélögin en sú upphæð sem hann nefndi dugar hvergi til. Þá er ekki hægt að sjá að verið sé að bæta sveitarfélögunum þetta, hvorki í fjáraukalögum þessa árs né í fjárlögum ársins 2023. Í síðustu fjárlögum var gert ráð fyrir 2,2 milljörðum í NPA-samninga og sú upphæð átti að duga fyrir 172 samningum. Það þýðir að hver samningur mátti kosta 13 milljónir að meðaltali. Niðurstaðan er hins vegar sú að hver samningur kostar að meðaltali 30 milljónir og dugar því upphæðin aðeins fyrir 74 samningum.

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin þarf að gera miklu betur en þetta.