153. löggjafarþing — 39. fundur,  29. nóv. 2022.

Fangelsismál.

[15:08]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti minnir enn og aftur á að ræðutími er takmarkaður við eina mínútu þegar þingmenn taka til máls um fundarstjórn forseta og forseti vill jafnframt minna hv. þingmenn á að umræður um fundarstjórn forseta eiga að meginstefnu að snúast um fundarstjórn forseta, [Hlátur í þingsal.] en ekki felast í efnislegri umræðu um þau mál sem þingmönnum kunna að vera mikið niðri fyrir út af.