Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[20:52]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú er ég bara í þeirri stöðu að ég verð að segja: Ég er 100% sammála hv. þingmanni. Það eru til skriflegar fyrirspurnir og svo náttúrlega ræður þar sem ég kom með nákvæmlega sömu spurningar og hv. þingmaður kom með til mín, þannig að ég get ekki annað en lýst mig algerlega sammála hér. Það var tími til kominn. Ég er búinn að bíða lengi eftir þessu, búinn að koma með skriflegar fyrirspurnir til hæstv. heilbrigðisráðherra á hinum ýmsu þingum, fjallað um þetta í blaðagreinum og hér í ræðustólnum, þannig að ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni.