Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 49. fundur, 14. des. 2022.
skráning raunverulegra eigenda.
226. mál
Virðulegi forseti. Þegar þetta mál var til umræðu í annarri umferð gerði ég ákveðnar athugasemdir og bað hv. efnahags- og viðskiptanefnd um að skoða ákveðna hluti. Mig langaði bara að þakka nefndinni kærlega fyrir að skoða þá hluti og taka þann tíma sem þurfti til þess að vera viss um að við værum að gera góða hluti hér. Því segi ég já.