Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.

2. mál
[13:30]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég styð ekki þessa tillögu hv. þm. Óla Björns Kárasonar, vinar míns og félaga. Ríkisútvarpið er fjölmiðill í almannaþágu og það skiptir gríðarlega miklu máli að framlögin til Ríkisútvarpsins séu fyrirsjáanleg.