153. löggjafarþing — 58. fundur,  1. feb. 2023.

lengd þingfundar.

[15:16]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti minnir á að hinn almenni gangur í meðferð þingmála er sá að eftir nefndarstarf milli 1. og 2. umr. eru mál rædd í 2. umr. Ef óskað er eftir því að mál gangi til nefndar að nýju þá gerist það milli 2. og 3. umr. og þær breytingar sem þá kunna að koma fram eru síðan ræddar í 3. umr. Forseti telur ekki fyrir sitt leyti tilefni til að gera hlé á 2. umr. vegna nefndarstarfs.