Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 62. fundur,  7. feb. 2023.

Störf þingsins.

[13:43]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Háskóla Íslands vantar að öðru óbreyttu milljarð til að ná endum saman vegna óboðlegs niðurskurðar upp á 2,2% og erfiðs rekstrarumhverfis húsnæðismála samkvæmt fjárlögum ársins 2023. Það er stefnt að miklum takmörkunum á nýráðningum innan skólans og dregið verður úr kennslu á fræðasviðum, auk þess sem fyrirséð er að skrásetningargjöld hækki enn frekar, úr 75.000 kr. í 95.000 kr. Hvernig eiga þessar fjárveitingar til háskólans að endurspegla sýn ríkisstjórnarinnar sem fram kemur í stjórnarsáttmálanum, þ.e. að stefna að sambærilegri fjármögnun háskóla á Íslandi og þekkist á hinum Norðurlöndunum? Er það tilviljun að háskólayfirvöld óski eftir hækkun á skrásetningargjaldinu í kjölfar 2. umr. fjárlaga og þeim niðurskurði til Háskóla Íslands sem þar er boðaður? Hér er augljóst að byrði af fjármögnun opinberrar háskólamenntunar er velt beint yfir á stúdenta vegna þess að stjórnvöld kjósa að halda ekki uppi grunnstarfsemi háskólanna með nægilegri fjárveitingu á fjárlögum. Það átakanlegasta í þessu er að hækkun gjaldsins er aðeins dropi í hafið fyrir háskólann miðað við það fjármagn sem upp á vantar en myndi aftur á móti hafa ómæld áhrif á stúdenta.

Virðulegur forseti. Þetta má ekki gerast. Þrátt fyrir vanfjármögnun Háskóla Íslands er það þungbær og umfram allt sorgleg tilhugsun að seilast enn lengra í vasa stúdenta sem er ætlað að halda uppi rekstri opinberrar háskólamenntunar. Hvernig geta slíkar ráðstafanir verið réttlætanlegar á þessum verðbólgutímum? Er til of mikils mælst að stjórnvöld sinni lögbundnum skyldum sínum og fjármagni opinbera háskólamenntun með sóma í stað þess að velta byrðinni yfir á stúdenta? Hvernig eigum við að standa jafnfætis þjóðum sem við viljum bera okkur saman við í menntamálum ef Háskóli Íslands stendur árlega frammi fyrir niðurskurðarhnífnum?

Þetta er ekki vöxtur. Þetta er ekki velsæld. Þetta er samdráttur. Þetta er skammsýni. Þetta er fátækleg menntastefna.