Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 62. fundur,  7. feb. 2023.

Störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Forseti. Íslenska þjóðin er sjálfstæð og fullvalda og af því erum við öll stolt. Það er auðvitað gott og eðlilegt að vera stoltur. En sjálfstæði og fullveldi fylgja réttindi og skyldur, bæði gagnvart þeim sem hér búa en líka gagnvart öðrum þjóðum. Fullveldið og sjálfstæðið eigum við að nýta til góðra verka okkur til hagsbóta, en líka í samfélagi þjóðanna. Það er einu sinni svo að við deilum veröldinni með öðrum sjálfstæðum og fullvalda þjóðum og allar verða þær að reiða sig hver á aðra á margvíslegan hátt.

Forseti. Við blasir að við eigum helst samleið með vestrænum lýðræðisríkjum, ekki síst Evrópuríkjum sem deila með okkur viðhorfum og gildum sem við viljum vernda og verja. Það er dagljóst að stærsta og metnaðarfyllsta verkefnið um samstarf og samvinnu í okkar heimshluta er Evrópusambandið. Við höfum tengst því bandalagi sterkum böndum og notið ávaxta þess samstarfs en ekki kosið að stíga skrefið til fulls. Raunar var það nú svo að við ætluðum að gera það fyrir um áratug en þau sem fóru með völdin á þeim tíma heyktust á því og stöðvuðu ferlið án þess að spyrja kóng eða prest, hvað þá hana Gunnu og hann Jón. Þátttaka okkar Íslendinga í alþjóðastarfi þarf að sækja styrk sinn í heilbrigða sjálfsmynd sem byggir í senn á raunsæi, sjálfstrausti, samkennd og samábyrgð. Við eigum að vera órög að láta til okkar taka á alþjóðavettvangi og við eigum að sitja við þau borð þar sem ákvarðanir eru teknar sem heimilismenn, ekki gestir. (Forseti hringir.) Aðild Íslands að Evrópusambandinu er mikið hagsmunamál og varðar sameiginlega (Forseti hringir.) framtíð okkar. Þess vegna þarf þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna.