Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 62. fundur,  7. feb. 2023.

Störf þingsins.

[13:59]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S):

Hæstv. forseti. Við lifum á tímum hraðrar tækniþróunar og í því felast bæði tækifæri og áskoranir. Á næsta ári mun tæknin þróast áfram á ógnarhraða og mikilvægt er að hið opinbera sé samstiga þeirri þróun. Ísland er í fremstu röð þegar kemur að stafrænni opinberri þjónustu. Með verkefninu Stafrænu Íslandi hefur verið lyft grettistaki í þessum málaflokki, en með aukinni stafrænni þjónustu getum við veitt betri þjónustu hraðar og óháð staðsetningu. Stafræn þróun hins opinbera býður einnig upp á að störf verði færanlegri og skapar þar af leiðandi atvinnutækifæri í dreifðari byggðum landsins. Hið opinbera á að vera meðvitað um þá þróun sem á sér stað í atvinnulífinu og standa ekki í vegi fyrir henni. Mín kynslóð hefur nýja sýn á sitt starfsumhverfi og sérfræðingar spá því að vinnumarkaður framtíðarinnar verði mjög frábrugðinn því sem við þekkjum í dag. Þannig munu eldri mælikvarðar á framleiðni eins og stimpilklukkur jafnvel heyra sögunni til. Á sama tíma er gervigreind að ryðja sér til rúms í auknum mæli og við sjáum stöðugt nýjar lausnir á þeim vandamálum sem eldri kynslóðir hafa staðið frammi fyrir. Menntakerfið, atvinnulífið og hið opinbera þarf að fylgja þessari þróun og vera opið fyrir nýjungum og nýsköpun. Þannig náum við árangri og tryggjum að ungt fólk sé tilbúið að takast á við framtíð sem við þekkjum ekki í dag. Við þurfum að skera niður kostnað hins opinbera, hann er of umfangsmikill. Að skera niður þýðir ekki að veita verri þjónustu heldur skynsamlegri.

Virðulegur forseti. Það er mín sýn að við getum gert betur í rekstri hins opinbera til að bæta þjónustu við fólk, forgangsraða betur og ná betri árangri þannig að yfirbygging og umsýsla sé ekki jafn kostnaðarsöm. Við höfum náð árangri í þeim efnum undanfarið en getum gert enn betur. Til þess þarf skýran vilja til að trúa því að ríkið sé ekki best í að leysa öll vandamál og skýran vilja til sjá tækifærin í því litla landi sem við búum í og nýta kosti þess og hagkvæmni og skilvirkni þótt við séum alltaf stórhuga.