dagskrártillaga.
Forseti vill tilkynna að borist hefur eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:
„Undirritaður gerir það að tillögu sinni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að á dagskrá næsta fundar verði þau dagskrármál sem forseti Alþingis leggur til, að því undanskildu að út af dagskrá fundarins verði tekið 382. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga (alþjóðleg vernd).“
Þá segir:
„Þess er óskað að tillagan verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“
Undir bréfið ritar hv. þm. Indriði Ingi Stefánsson.
Þessi tillaga verður borin upp til atkvæða í upphafi næsta þingfundar.