Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

tímasetning þingfundar.

[10:34]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Þetta er svolítið ófyrirsjáanlegar vinnustaður. Það skiptir máli hvort það er ein og hálf klukkustund auka til að undirbúa sig eða ekki. Ef hér eiga að fara fram gagnlegar umræður og gagnrýnar umræður þarf þetta að vera á hreinu. Mér finnst ótrúlegt að þetta breytist bara einhvern veginn eftir veðrinu og það sé ekki látið standast. Ef það er villa þá þarf bara að seinka fundi vegna þess að það eru margir sem ekki voru búnir að undirbúa sig eins vel og þeir vildu.