Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[13:04]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. 14 dagar til að greinargerð berist er bara alls ekki nægur tími fyrir einstaklinga. Í löndum í kringum okkur er tíminn 21 dagur en ekki 14 dagar þannig að við ætlum að ganga lengra en þau. Hér er réttindaskerðing fyrir þessa einstaklinga og það er mér með öllu óskiljanlegt hvers vegna. Því segi ég nei.