Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 66. fundur, 21. feb. 2023.
Störf þingsins.
Forseti hlýtur að geta athugasemd við það að fjarstaddir menn séu uppnefndir hér ítrekað í ræðustól. Jafnvel þó að hv. þingmönnum geti verið heitt í hamsi og þó að þeir hafi athugasemdir við embættisfærslu einstakra manna þá er ekki í samræmi við þingsköp að uppnefna fjarstadda menn sem þar að auki eru ekki hér til að svara fyrir sig.