Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 68. fundur,  23. feb. 2023.

grænir hvatar fyrir bændur.

71. mál
[17:00]
Horfa

Flm. (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um græna hvata fyrir bændur. Hugmyndin að baki þessari tillögu er einfaldlega sú að hæstv. matvælaráðherra verði falið að skipa starfshóp til að skoða bætt tækifæri bænda til að græða viðkvæm og illa farin vistkerfi, m.a. með skógrækt og endurheimt votlendis. Við eigum nýleg svör frá hæstv. matvælaráðherra um endurheimt votlendis á ríkisjörðum og þær tölur bera sannarlega með sér að þar megi gera betur. Þessi starfshópur fái það verkefni að leita að leiðum til að skapa græna hvata fyrir bændur til að auka uppgræðslu og draga úr kjötframleiðslu og annarri framleiðslu dýraafurða. Hér er lagt til hvernig skipa eigi þennan hóp, þ.e. með fulltrúum bænda og með fulltrúum Landgræðslunnar, Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands. Meginverkefnið verði að leggja til hvatakerfi, mælanleg markmið fyrir hvert ár. Matvælastofnun verði falið að annast eftirlit með framkvæmd þannig að tryggt sé að það fjármagn sem varið verði til þessara aðgerða nýtist á sem bestan hátt. Ráðherra geri svo Alþingi grein fyrir framgangi og niðurstöðum þessa verks á þessu ári.

Ég hef áður lagt fram þessa þingsályktunartillögu en hún var ekki afgreidd og legg hana fram núna öðru sinni.

Hin pólitísku rök hér að baki eru þau að það liggur fyrir að það þarf, það blasir við að það þarf að draga úr losun heimsins á gróðurhúsalofttegundum um helming næsta áratuginn til að fyrirbyggja að hnattræn hlýnun verði umfram 1,5°C miðað við hitastig fyrir tíma iðnbyltingarinnar. Þetta er gríðarlega mikil og stór áskorun og krefst þess að við göngum til verka. Við erum ekki ein í þessu verkefni, vitaskuld ekki, en við erum heldur ekki undanskilin þessu verkefni. Öll ríki heimsins standa frammi fyrir því að það þarf að grípa til stórtækra aðgerða til að ná þessum markmiðum. Stærsta skrefið sem Ísland gæti tekið til að draga markvisst og hratt úr losun gróðurhúsalofttegunda er einmitt með því að endurheimta votlendi og stöðva losun frá illa förnu landi.

Ég legg til að ráðherra skipi starfshóp sem hafi þetta markmið og það markmið að auðvelda bændum og gera þeim það aðgengilegt að gera íslenskan landbúnað umhverfisvænni með jákvæðum grænum hvötum þannig að bændur njóti góðs af skuldbindingum íslenska ríkisins í umhverfismálum. Með því myndu bændur taka að sér stærra og metnaðarfyllra hlutverk við endurheimt vistkerfa með því að draga úr losun og auka bindingu gróðurhúsalofttegunda. Samfélagslegur ávinningur þessa blasir auðvitað við. Hér eru líka falin stór og mikil tækifæri til nýsköpunar í þessari grein.

Það er áætlað að nettólosun landsins nemi 14 milljónum tonna af koldíoxíðígildum á hverju ári og sérfræðingar telja að það megi bæta 4 milljónum tonna við vegna losunar frá illa förnu landi þannig að þetta eru stórar tölur. Í greinargerðinni er nánar farið yfir og rakið hver veruleikinn er í þeim efnum en áætlað er að um 10–15% framræsts votlendis sé í notkun í landbúnaði sem þýðir að hægt er með endurheimt votlendis að draga úr losun sem nemur 6,6 milljónum tonna af CO2-ígildum án þess að það hafi áhrif á ræktun í landbúnaði.

Að mati flutningsmanna sem koma úr þingflokkum Viðreisnar, Samfylkingar og Pírata þá gæti reynst sérstaklega þýðingarmikið fyrir dreifðar byggðir að veita sauðfjárbændum tækifæri til að gerast vistbændur, sérstaklega þar sem áskoranir í endurheimt vistkerfa eru miklar. Með því skapast alvöru og raunverulegir valkostir á grænum störfum í landbúnaði og um leið gríðarlega mikill ávinningur fyrir samfélagið allt með meira vatni og lífi í ám og lækjum og færri sárum og skurðum í landslaginu.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni en ég dreg þetta kannski bara saman með því að segja að hér fara að mínu mati saman jákvæð og skýr skilgreind markmið á sviði umhverfis- og loftslagsmála og tækifæri fyrir landsbyggðirnar með hvötum í átt að fjölbreyttari störfum á sviði landbúnaðar.