Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 70. fundur,  28. feb. 2023.

Störf þingsins.

[15:23]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Hvað þýðir það á ríkisstjórnarfundum að setja fyrirvara við mál samráðherra? Ríkisstjórnin er jú ekki fjölskipað stjórnvald en ég held að það sé óhætt að segja að ráðherrar í 2. ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur séu að setja Íslandsmet í að bera af sér stefnu hver annars. Já, og yfirleitt með orðunum að ríkisstjórnin sé ekki fjölskipað stjórnvald. Hvers konar skilaboð eru það eiginlega til almennings að vera svona ósammála í nánast öllum grundvallarmálum? Þá er það einnig þannig að þegar þeim hentar þá kasta ráðherrar ábyrgð sinni á þingið. Nýjasta dæmið er þegar hæstv. fjármálaráðherra var spurður út í stjórnlaus ríkisútgjöld án tekjuöflunar, annarrar en þeirrar að seilast ofan í vasa almennings með jafnri krónutölu sem bitnar auðvitað verst á þeim tekjulægstu. Aðspurður hafnaði ráðherrann allri ábyrgð, sagði Alþingi fara með fjárveitingavaldið og að það væri Alþingi sem tæki ákvörðun um hækkun útgjalda.

Frú forseti. Þetta er eiginlega með hreinum ólíkindum. Ráðherra er með þessum orðum að blekkja almenning. Við vitum að meiri hluti inni í nefndunum situr og bíður tillagna frá ráðherra sínum og leggur svo fram í sínu nafni. Þetta gerist, frú forseti, á hverju einasta ári við afgreiðslu fjárlaga og hefur núna smitast yfir á önnur mál.

Fyrst ég er byrjuð þá er auðvitað ótrúlegt að heyra hvern ráðherrann á fætur öðrum koma fram og segjast bíða breytingartillagna frá nefndum þingsins, svona eins og til að fría sig frá stefnu samráðherra sinna. Inni í nefndunum, leyfi ég mér að upplýsa, á sér hins vegar ekki stað neitt samtal. Þar bíður meiri hlutinn eftir skilaboðum frá tilteknum ráðherra um hvað eigi að gerast.

Það virðist, frú forseti, sem ráðherraræðið sé bara orðið svo algjört hjá meiri hlutanum að fulltrúar meiri hlutans í hverri fastanefndinni á fætur annarri kyngi ælunni (Forseti hringir.) dag eftir dag í hverju málinu á fætur öðru, bara til þess einhvern veginn að breiða yfir (Forseti hringir.) hvað þessi ríkisstjórn er brjálæðislega ósamstiga. Ég spyr: Er ekki komið gott af þessu málamyndahjónabandi?