Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 75. fundur,  8. mars 2023.

aðgerðaáætlun gegn hatursorðræðu fyrir árin 2023 - 2026.

795. mál
[16:50]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég geri þá ekki ráð fyrir því að spurningunni verði svarað þar sem ekki er fallist á forsendurnar en þá ætla ég bara að fá það staðfest að hæstv. forsætisráðherra telji þetta ekki vera vandamál og ætli ekki að bregðast við þessu. Það er þá seinni spurningin mín, hún er ekki lengri en það.