153. löggjafarþing — 80. fundur,  14. mars 2023.

Störf þingsins.

[13:56]
Horfa

Viðar Eggertsson (Sf):

Herra forseti. Heimskt er heimaalið barn, segir gamall málsháttur, með leyfi forseta. Það er í eðli skapandi fólks að þurfa að hleypa heimdraganum og leita á nýjar lendur til að takast á við nýjar og gefandi áskoranir. Það hefur vart farið fram hjá nokkrum Íslendingi hversu öflug íslensk menning og listsköpun hefur orðið á síðustu árum og áratugum. EES-samningurinn, sem við undirrituðum árið 1994, hefur opnað fyrir íslenska listamenn áður lokuð hlið og rutt úr vegi ókleifa múra til menningarlegra landvinninga í Evrópu. Hin skapandi stétt listamanna hefur nýtt sér þau miklu tækifæri sem þá gáfust með ótrúlega gefandi hætti og uppskorið ríkulega. Gott orðspor íslenskrar listar og menningar hefur aukist gífurlega vegna þessa. Ófáir íslenskir listamenn hafa rennt styrkum stoðum undir starf sitt sem listamenn víða um Evrópu eftir að samningurinn tók gildi og þannig hefur atvinnugrundvöllur þeirra eflst til muna og ýmis tækifæri hafa gefist í samstarfi við önnur þau 26 Evrópulönd sem samningurinn nær til.

EES-samkomulagið hefur brotið niður múra og gert Evrópu aðgengilega fyrir stórhuga listamenn því samningurinn felur í sér ótal tækifæri til listsköpunar fyrir frjóa Íslendinga. Samningurinn nær til náinna samstarfsverkefna á ýmsum sviðum, ekki síst menningar. Því er það með ólíkindum að menningar- og viðskiptaráðuneytið eigi ekki einn einasta starfsmann á skrifstofu okkar í Brussel eins og öll önnur ráðuneyti hafa þegar þar (Forseti hringir.) til að vinna að hagsmunamálum og tækifærum sem þar gefast, bæði í viðskiptum og menningu. (Forseti hringir.) Því hef ég lagt fram skriflega fyrirspurn til mennta- og viðskiptaráðherra hverju þessu sæti.