153. löggjafarþing — 81. fundur, 15. mars 2023.
útlendingar.
382. mál
Forseti. Varatillagan snýst um að fella brott orðin „leggur fram frekari gögn í máli sínu eða“, þannig að það teljist ekki vera endurtekin umsókn þegar fólk leggur fram frekari gögn í máli sínu. Eftir stendur þá eðlilegri skilgreining á endurtekinni umsókn, sem er gölluð en skárri með þessari breytingu.