Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 85. fundur,  22. mars 2023.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Stýrivaxtahækkun dagsins kom fáum á óvart enda kjarklaus og verkstola ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur við völd hér á landi. Stýrivextir eru nú 114–188% hærri hér en annars staðar á Norðurlöndum og Seðlabankinn hefur fá önnur ráð í glímunni við óðaverðbólguna en að hækka stýrivexti. Það er sterkt samband milli gengisþróunar, vaxtastigs og verðlags og rétt eins og Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor hefur bent á er þetta keðjuverkun. Hækki verðlag örar hér en erlendis lækkar gengið. Sé vaxtastig hér hærra en erlendis hækkar gengið. Jafnframt því að ýta undir gengishækkun virkar vaxtahækkun letjandi á eftirspurn og þar með verðlagshækkanir innan lands. Fyrirtækin þurfa svo að taka afstöðu til óorðinna hluta og gera sér einhverjar hugmyndir um þróun þessara stærða, þ.e. gengis krónunnar og vaxta, og taka svo ákvörðun um verð til almennings í kjölfarið því að fyrirtækin ætla sér ekki að bera hallann í þessu flöktandi umhverfi óðaverðbólgu og himinhárra stýrivaxta.

Í stuttu máli, svo vitnað sé aftur til prófessors Þórólfs Matthíassonar, eru fjárfestar ekki tilbúnir til að fjárfesta í eignum í íslenskum krónum nema gegn ávöxtun sem er nægilega miklu hærri en ávöxtun á sambærilegum eignum erlendis til að bæta mögulegt tjón vegna óvæntrar verðbólguþróunar eða óvæntra árása spákaupmanna á íslensku krónuna.

Herra forseti. Við ríkisstjórnarborðið rúmast svo engin ráð önnur en að fjölga ferðalögum ráðherra, fjölga starfsfólki í ráðuneytum og ræða svo helst eitthvað allt annað en það hvernig efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar hefur beðið skipbrot sem bitnar harkalega á öllum almenningi. Hér ríkir villta vestrið á húsnæðismarkaði í örhagkerfi með smágjaldmiðli og ríkisstjórn sem er kjarklaus og verkstola fer ekki í nauðsynlegar aðgerðir, svo sem tekjuöflun í formi hvalrekaskatts, svo dæmi séu tekin. Er ekki kominn tími á að ríkisstjórnin skili bara lyklunum að Stjórnarráðinu?