Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 87. fundur, 27. mars 2023.
lengd þingfundar.
Forseti vill geta þess að á fundum með þingflokksformönnum í morgun gerði forseti grein fyrir því að hann hygðist leita eftir heimild til þess að halda þingfundi lengur áfram í kvöld en þingsköp kveða á um ef það mætti verða til þess að unnt yrði að ljúka við þær munnlegu fyrirspurnir sem á dagskrá eru. Eins og hv. þingmenn vita þá er gert ráð fyrir tveimur þingfundum í dag og á síðari þingfundi eru fyrirspurnir til munnlegs svars.