Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 93. fundur, 31. mars 2023.
svör við fyrirspurnum.
782. mál
Frú forseti. Ég vil bara að koma hérna upp og taka undir með hv. þingmönnum og ýta svolítið eftir fyrirspurn sem ég lagði fram 11. október á síðasta ári. Hvað er langt síðan? Það eru einhverjir mánuðir þannig að ég væri rosalega til í að fá svar við þessu. Mér finnst það mjög mikilvægt málefni og ég vona bara að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra geti ýtt á eftir þessu, það væri rosa gott. Það er mjög mikilvægt að fá svör við fyrirspurnum.