Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 94. fundur,  17. apr. 2023.

varamenn taka þingsæti.

[15:11]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Eyjólfur Ármannsson, 6. þm. Norðvest., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Hildur Sverrisdóttir, 5. þm. Reykv. s., verði fjarverandi á næstunni. Að lokum hefur borist bréf frá varaformanni þingflokks Viðreisnar um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 5 þm. Suðvest., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni.

Í dag taka því sæti á Alþingi, Sigurjón Þórðarson, 4. varamaður á lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, en varamenn ofar á lista hafa boðað forföll, Friðjón R. Friðjónsson, 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Ástrós Rut Sigurðardóttir, 3. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi en 1. og 2. varamaður hafa boðað forföll.

Sigurjón Þórðarson og Friðjón R. Friðjónsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnir velkomnir til starfa að nýju.

Landskjörstjórn hefur gefið út tilkynningu á grundvelli 1. mgr. 113. gr. kosningalaga til Ástrósar Rutar Sigurðardóttur. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kosningu og kjörgengi hennar.