varamenn taka þingsæti.
Í gær, mánudaginn 1. maí, tók Friðjón R Friðjónsson, 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, sæti á ný á Alþingi sem varamaður fyrir Hildi Sverrisdóttur og víkur þá 2. varamaður á lista, Ágústa Guðmundsdóttir, af þingi.
Friðjón R Friðjónsson er boðinn velkominn til starfa að nýju.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Þórarinn Ingi Pétursson, 9. þm. Norðaust., verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista flokksins í kjördæminu, Helgi Héðinsson.
Helgi Héðinsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.