Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 102. fundur,  3. maí 2023.

fæðingar- og foreldraorlof.

955. mál
[16:36]
Horfa

Flm. (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til breytinga á lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, en að málinu stend ég ásamt öllum þingflokki Samfylkingarinnar. Um er að ræða margháttaðar tillögur að breytingum á fæðingarorlofskerfinu sem miða allar að því að tryggja betur afkomuöryggi foreldra og stuðla að betra jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs.

Áður en ég vík að efnisatriðum frumvarpsins vil ég koma því á framfæri að við í Samfylkingunni teljum það forgangsmál að stigin verði frekari skref til lengingar á fæðingarorlofi. Í skýrslu sem unnin var af Norðurlandaráði í fyrra í tengslum við verkefnið Fyrstu 1000 dagar barnsins á Norðurlöndunum er lagt sérstaklega til í kafla um Ísland og stefnumótun í málefnum barna á Íslandi að fæðingarorlof orlof lengist upp í 18 mánuði. Það er alveg ljóst í mínum huga að hver einasti mánuður sem fæðingarorlof yrði lengt um myndi skipta sköpum fyrir barnafólk í landinu, hvort sem við erum að tala um 14, 16 eða 18 mánuði, en þá held ég að það sé mikilvægt með tilliti til jafnréttissjónarmiða að gert sé ráð fyrir sjálfstæðum rétti hvors foreldris fyrir sig til fleiri orlofsmánaða.

Lenging fæðingarorlofs er grundvallarmál sem mun ekki fara í gegnum Alþingi í formi þingmannafrumvarps. Það er mál sem kallar á ríkan pólitískan vilja við ríkisstjórnarborðið. Þetta kallar á víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins. Það þarf að ná sátt um það hvernig þetta er fjármagnað. Það þarf að huga vel að tímasetningu með tilliti til efnahagsaðstæðna o.s.frv., e.t.v. er skynsamlegt að gera það í skrefum, þannig hefur það áður verið gert. En ég vil minna á í þessu samhengi að árið 2012, þegar Samfylkingin og Vinstrihreyfingin – grænt framboð stjórnuðu landinu, samþykkti Alþingi frumvarp um að fæðingarorlof yrði lengt og yrði þá 12 mánuðir frá og með árinu 2016. En eitt af fyrstu verkum hægri stjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins var að hætta við þessa lengingu og fyrir vikið var fæðingarorlofið ekki lengt fyrr en árið 2020. Nú held ég að það sé löngu tímabært að stíga enn stærri skref, foreldrum og börnum til heilla, og ég held að ríkissjóður, vinnumarkaðurinn og íslenskt atvinnulíf standi vel undir því og á endanum yrði þetta allra hagur.

Frumvarpið sem ég mæli hér fyrir felur í sér ýmsar breytingar á núgildandi fæðingarorlofslöggjöf og tillögurnar gætu í sjálfu sér staðið sjálfstæðar hver um sig. En ég legg fram þetta frumvarp til að varpa ljósi á þá sýn sem við í Samfylkingunni höfum á það hvernig fæðingarorlofskerfið á að virka og hvernig sé skynsamlegt að styðja foreldra yngstu barnanna. Að taka fullt og óskert fæðingarorlof eiga ekki að vera einhver forréttindi sem einungis þau efnameiri geta leyft sér. Það á ekki að setja nýbakaða foreldra í þá stöðu að þurfa að hafa áhyggjur af afkomu fjölskyldunnar vegna skertra tekna. Fjölskyldur yngstu barna verða líka að hafa svigrúm til þess eftir að fæðingarorlofi sleppir á fyrstu æviárum barnsins að stytta vinnutíma sinn, stytta starfshlutfall, og hafa þannig aukinn tíma til samveru með börnunum sínum. Það er það sem þetta frumvarp snýst um.

Víkjum þá að efnisatriðum frumvarpsins. Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar sem snúast sérstaklega um afkomuöryggi tekjulægstu foreldranna, snúast um að sporna gegn því að nýfædd börn á Íslandi alist upp við fátækt. Og þá er lögð til í fyrsta lagi sú grundvallarbreyting á ákvæði 23. gr. laganna um útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði að fyrstu 350.000 kr. af viðmiðunartekjum foreldra á mánuði verði óskertar, þ.e. að þessi 80% regla sem við þekkjum, reglan um 20% skerðingu á viðmiðunartekjum, taki einungis til þeirra viðmiðunartekna sem eru umfram þessa fjárhæð, umfram 350.000 kr. og það er auðvitað eðlilegt að sú fjárhæð fylgi verðlagi.

Hvað þýðir þetta? Þetta þýðir að ef foreldri hefur t.d. 600.000 kr. í meðaltekjur á mánuði á viðmiðunartímabili þá fær viðkomandi fyrstu 350.000 krónurnar af tekjum sínum á viðmiðunartímabili óskertar og svo 80% af þeim 250.000 kr. sem eftir eru. Mánaðarleg greiðsla verður þá 550.000 kr. Hún er umtalsvert lægri í dag. Þetta er auðvitað alger lykilaðgerð til að gera fæðingarorlofskerfið og þessa reiknireglu sanngjarnari því að launalægsta fólkið á Íslandi má augljóslega ekkert við því að verða fyrir 20% tekjuskerðingu þegar það eignast barn. Það hlýtur að liggja í augum uppi. Svo er þetta auðvitað bara breyting sem skapar tekjulægri fjölskyldum aukið fjárhagslegt svigrúm og auðveldar þeim þannig að nýta sér allan þann rétt sem þær eiga til töku fæðingarorlofs.

Í öðru lagi leggjum við til hækkun á fæðingarstyrk námsmanna og fæðingarstyrk fyrir fólk utan vinnumarkaðar. Samkvæmt núgildandi lögum skal fæðingarstyrkur til foreldris utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli aldrei vera lægri en sem nemur 83.233 kr. á mánuði og fæðingarstyrkur námsmanna aldrei vera lægri en sem nemur 190.747 kr. á mánuði. Þetta eru auðvitað smánarlegar fjárhæðir. Við leggjum til að fjárhæðirnar hækki upp í 120.000 kr. og 250.000 kr. sem er í raun lítið annað en verðbæting á þessum fjárhæðum sem voru leiddar í lög fyrir tveimur árum. En ég minni á að ráðherra hefur það í hendi sér að hækka þessar fjárhæðir með reglugerð. Það þarf enga íhlutun löggjafans til. Ég held að það sé engu að síður eðlilegt að þessi lágmarksfjárhæð fylgi verðlagi. Ég vil líka bara benda á að þetta eru tiltölulega ódýrar aðgerðir fyrir ríkissjóð í stóra samhengi ríkisfjármálanna. Það eru ekki það margir sem njóta þessara fæðingarstyrkja. Gott ef það var ekki kosningamál hjá Sjálfstæðisflokknum í síðustu kosningum að hækka fæðingarstyrk námsmanna. Við leggjum líka til að þak á mánaðarlegri greiðslu fæðingarorlofs hækki úr 600.000 kr. upp í 800.000 kr. Þetta er sjálfsagt jafnréttismál í mínum huga. Auðvitað ætti þetta þak að vera talsvert hærra þegar við erum með tekjutengt fæðingarorlofskerfi yfir höfuð, rétt eins og fæðingarstyrkirnir, en einhvers staðar þarf að byrja, og þetta er lágmarkskrafa sem við setjum fram um að þessir fæðingarstyrkir og þakið hækki.

Svo leggjum við til kerfisbreytingu, leggjum til að lögfestur verði sérstakur réttur til launaðs meðgönguorlofs eins og tíðkast í Noregi og Danmörku, sem sagt að mælt verði fyrir um það í lögum að barnshafandi foreldri sé heimilt að hefja töku fæðingarorlofs allt að fjórum vikum fyrir áætlaðan fæðingardag án þess að sá tími komi til frádráttar þeim tíma sem foreldri á rétt til launaðs fæðingarorlofs eftir að barn fæðist. Að þessu hníga sterk heilsufarsleg rök. Tillagan er í takti við sjónarmið sem komu fram í umsögnum Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna, Félags íslenskra heimilislækna og Ljósmæðrafélags Íslands þegar núgildandi fæðingarorlofslög voru til þinglegrar meðferðar hér 2019 eða 2020. Þessi fagfélög bentu á að konur eru gjarnan orðnar óvinnufærar á síðustu vikum meðgöngu vegna þunga, vegna meðgöngutengdra kvilla og óþæginda. Hér þarf auðvitað að hafa í huga að möguleikar kvenna til veikindaleyfis á vinnumarkaði eru mjög mismunandi. Þar hallar til að mynda á konur af erlendum uppruna, sérstaklega konur í láglaunastörfum. Þessi réttur til sérstaks launaðs meðgönguorlofs, sem er að norrænni fyrirmynd, er þannig til þess fallinn að jafna aðstæður kvenna í lok meðgöngu.

Þá erum við kannski komin að frumlegustu tillögunni í þessu frumvarpi sem er sú að lögfestur verði sérstakur réttur foreldra til vinnutímastyttingar að loknu fæðingarorlofi með stuðningi úr Fæðingarorlofssjóði. Hver er hugsunin hér? Jú, það er staðreynd að Ísland er eftirbátur flestra OECD-ríkja þegar kemur að jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs. Við erum í 32. sæti í þessum flokki samkvæmt lífsgæðasamanburði OECD, skerum okkur þannig rækilega úr hópi Norðurlandaþjóða. Noregur og Danmörk eru í 2. og 3. sæti á þessum lista. Ég held að Tyrkland sé eina landið sem fær lægri einkunn en Ísland þegar kemur að jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs. Þetta þykja mér frekar sláandi gögn og kalla á afgerandi aðgerðir af hálfu löggjafans.

Á vettvangi Evrópusambandsins hefur verið lögð áhersla á að tryggja foreldrum með ung börn rétt til sveigjanlegs vinnutíma. Í þessu samhengi vil ég t.d. vísa til Evróputilskipunar 2019/1158, um jafnvægi milli fjölskyldu og atvinnulífs. Í Svíþjóð hafa t.d. foreldrar barna yngri en átta ára fortakslausan rétt til allt að 25% skerðingar á starfshlutfalli. Þar er fæðingarorlof reyndar talsvert lengra en hér, 480 dagar eða 16 mánuðir, og börn eiga svo lögbundinn rétt til leikskólavistar frá 12 mánaða aldri. Það er umhugsunarvert að á flestum Norðurlöndum er börnum tryggður slíkur réttur en ekki hér og þá er bara gert það sem þarf í samstarfi ríkis og sveitarfélaga til að tryggja að þetta raungerist. En í Svíþjóð er það þannig að foreldrar nýta þá gjarnan restina af fæðingarorlofsréttinum til að minnka við sig vinnu fyrstu æviár barnsins.

Hér á Íslandi eiga foreldrar samkvæmt núgildandi fæðingarorlofslöggjöf rétt á svokölluðu foreldraorlofi í fjóra mánuði til að annast barn fram að átta ára aldri. Þetta er ólaunað orlof sem eðli máls samkvæmt nýtist helst þeim sem hafa efni og tök á því að hverfa frá störfum og afsala sér tekjum. Raunar heyrir til algerra undantekninga að fólk nýti sér þennan rétt. Ég lagði fram fyrirspurn til félags- og vinnumarkaðsráðherra um þetta á síðasta löggjafarþingi og fékk svör um það hversu mörg heimili hafa nýtt sér þennan rétt. Árið 2021 voru það 13 heimili sem nýttu sér þennan rétt til foreldraorlofs.

Ég vil meina að sú tillaga sem hér er lögð til sé talsvert markvissari leið til að skapa jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs á Íslandi og þá óháð heimilistekjum og aðstæðum almennt. Breytingin felur í sér að foreldrar munu þá eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sem reiknast á sama hátt og fæðingarorlofsgreiðslur, þessar hefðbundnu, nema í hlutfalli við skerðingu á starfshlutfalli. Við gerum ráð fyrir óframseljanlegum rétti fyrir hvort foreldri til allt að 20% minnkunar starfshlutfalls í allt að sex mánuði.

Virðulegi forseti. Nú hef ég farið yfir efnisatriði frumvarpsins. Allt eru þetta tillögur sem snúast um að bæta kjör nýbakaðra foreldra ungra barna og gera fæðingarorlofskerfið okkar að mínu viti sanngjarnara og betra. Ég legg til að málið gangi til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.