Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 108. fundur,  15. maí 2023.

störf ríkisstjórnarinnar.

[15:16]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Hvað er eiginlega í gangi hjá hæstv. ríkisstjórn? Af hverju eru engir hérna til að taka á þeim málum sem virkilega brenna á? Eitt er að láta sig alþjóðamálin varða í vikunni en hæstv. ráðherrar hljóta að átta sig á því að slíkt kemur ekki í staðinn fyrir forystu hér í innanlandsmálum. Fólkið í landinu er að bíða eftir aðgerðum. Nú er ég snúin aftur eftir fæðingarorlof og sé á dagskrá Alþingis að það er ekkert að gerast. Það er lítið á dagskrá og þingfundum er frestað. Ég ætlaði að eiga hér í dag orðastað við eitthvert af forystufólki hæstv. ríkisstjórnar, en ekkert þeirra ætlar að láta sjá sig hér á Alþingi í dag og sitja undir svörum, t.d. um verðbólgu, vexti, verkföll og húsnæðismál, enda virðist þeim líða best á meðan pólitíska umræðan hverfist um mál sem snúast ekki um veruleika venjulegs fólks, þótt þetta sé því efst í huga þessa dagana, efnahags- og velferðarmálin.

Forseti. Það er eins og ríkisstjórnin hafi gefist upp, yfirgefið Alþingi og stóru efnahags- og velferðarmálin til að sinna einhverju allt öðru. Ég vil því fara þess á leit við hæstv. forseta að óundirbúnar fyrirspurnir með einhverjum af leiðtogum ríkisstjórnarflokkanna verði settar á dagskrá síðar í vikunni. (Gripið fram í: Heyr heyr )