Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 109. fundur,  16. maí 2023.

Störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil bjóða velkomna til leiks aftur hér á Alþingi Íslendinga hv. formann Samfylkingarinnar, sem fór mikinn í gífuryrðum í gær um störf ríkisstjórnarinnar og spurði hvað væri eiginlega í gangi.

Virðulegi forseti. Mér er það bæði ljúft og skylt að upplýsa hv. formann um það sem ríkisstjórnin hefur gert síðustu misseri. Í fastanefndum þingsins eru yfir 50 ríkisstjórnarmál til umfjöllunar, þar með talið frumvarp til að rýmka fyrir veitingu dvalar- og atvinnuleyfa, frumvörp um sameiningar ýmissa stofnana, úrbætur á póstþjónustu og frumvarp til að auðvelda tæknifrjóvganir og notkun kynfrumna og fósturvísa. Þá hafa ráðherrar lagt fram stefnumótandi áætlanir í fjölmörgum málaflokkum, svo sem matvælaframleiðslu, landbúnaði, geðheilbrigðismálum, þekkingarsamfélaginu og síðast en ekki síst ríkisfjármálunum. Í gær lögðu svo formenn og fulltrúar allra flokka fram þingsályktunartillögu um kaup á færanlegu neyðarsjúkrahúsi fyrir Úkraínu.

Hv. formaður velti einnig fyrir sér hvað hefði gerst á Alþingi síðustu vikur og mánuði. Hæstv. ráðherrar urðu við beiðnum hv. flokkssystkina formannsins um að ræða sérstaklega um kjaragliðnun og verðbólgu og stýrivaxtahækkanir. Þá hafði hv. formaður tækifæri til að spyrja ráðherra spjörunum úr undir dagskrárliðnum óundirbúnar fyrirspurnir, en kaus að taka ekki þátt í þeim dagskrárlið. Hvernig er hægt að kvarta yfir því að ráðherrar ríkisstjórnarinnar sitji ekki fyrir svörum þegar þeir hinir sömu sitja hér í þingsal og ekki er mætt til leiks til að spyrja þá spurninga? Formaður Samfylkingarinnar lét þau orð falla hér í gær að það væri eins og ríkisstjórnin væri búin að gefast upp. En þá hlýt ég, sem formaður efnahags- og viðskiptanefndar, að beina þeirri spurningu til hv. formanns Samfylkingarinnar hvort þau séu kannski búin að gefast upp.