153. löggjafarþing — 120. fundur,  7. júní 2023.

Almennar stjórnmálaumræður.

[19:41]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Tekið er fyrir eina dagskrármálið, almennar stjórnmálaumræður, sem útvarpað er og sjónvarpað hér úr Alþingishúsinu.

Umræðurnar skiptast í tvær umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð. Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Samfylkingin, Flokkur fólksins, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Miðflokkurinn.

Ræðumenn flokkanna verða:

Fyrir Samfylkinguna tala í fyrri umferð Kristrún Frostadóttir, 3. þm. Reykv. s., í þeirri seinni Oddný G. Harðardóttir, 8. þm. Suðurk.

Ræðumenn Flokks fólksins eru: Inga Sæland, 7. þm. Reykv. s., í fyrri umferð og Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þm. Suðvest., í seinni umferð.

Fyrir Sjálfstæðisflokkinn tala Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrri umferð og Bryndís Haraldsdóttir, 6. þm. Suðvest., í seinni umferð.

Ræðumenn Pírata eru í fyrri umferð Andrés Ingi Jónsson, 10. þm. Reykv. n., og í seinni umferð Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, 6. þm. Reykv. s.

Fyrir Framsóknarflokkinn tala Ingibjörg Isaksen, 1. þm. Norðaust., í fyrri umferð og Jóhann Friðrik Friðriksson, 5. þm. Suðurk., í þeirri seinni.

Ræðumenn Viðreisnar eru Hanna Katrín Friðriksson, 8. þm. Reykv. s., í fyrri umferð og í þeirri seinni Sigmar Guðmundsson, 12. þm. Suðvest.

Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Orri Páll Jóhannsson, 10. þm. Reykv. s., í fyrri umferð og Jódís Skúladóttir, 10. þm. Norðaust., í seinni umferð.

Fyrir Miðflokkinn tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðaust., í fyrri umferð og í þeirri síðari Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvest.