154. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[10:52]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmanni er tíðrætt um örugg skref Samfylkingarinnar. Sem þingmaður Reykjavíkur verð ég að fá að spyrja hvort hér sé um að ræða sömu öruggu skref Samfylkingarinnar og eru stigin af þeim flokki í Reykjavíkurborg þar sem fólk missir jafnvel vinnuna vegna þess að dagvistun er ekki að finna. Fjárfestar líta ekki við skuldabréfum borgarinnar. Ég spyr, því að mörg önnur dæmi eru til staðar, við vitum það öll, þar sem Samfylkingin hefur stigið örugg skref með alla borgarbúa með sér ofan í skurð.