154. löggjafarþing — 33. fundur,  20. nóv. 2023.

tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.

508. mál
[16:46]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tek bara undir þá brýningu hv. þm. Guðmundar Inga Kristinssonar að það þurfi að auglýsa þetta úrræði vel því að það skiptir mjög miklu máli að fólk viti rétt sinn og að það geti leitað á réttan stað til að fá réttar og góðar upplýsingar. Ég ætla ekki að lengja þetta frekar en tek undir með hv. þingmanni.