154. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2023.

Störf þingsins.

[13:56]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Það var afar áhrifamikið að vera á Austurvelli á laugardaginn en þar var aðgerðaleysi stjórnvalda í garð fólks með fíknisjúkdóma mótmælt. Erfiðast var að fylgjast með aðstandendum þeirra sem hafa látist leggja rósir á tröppurnar hér við Alþingishúsið. Að sjá mæður með föðurlaus börn og tárvota foreldra syrgja barnið sitt er erfitt en að sama skapi vitnisburður um hve vandinn er alvarlegur. Stefnuleysi stjórnvalda er sömuleiðis sorglegt en það hefur ekki verið í gildi stefna í áfengis- og vímuvörnum síðan 2020. Fólk deyr í tugatali á ári hverju og samt er ekki unnið eftir neinu langtímaplani.

Ég hef nú lagt fram þingsályktunartillögu ásamt öðrum þingmönnum Viðreisnar um mótun slíkrar stefnu og að hana eigi að leggja fram ekki síðar en í vor. Við hljótum að gera allt sem við getum til að fækka dauðsföllum og hlúa betur að fárveiku fólki. Þetta er flókinn heilbrigðisvandi sem ekki er hægt að leysa með plástrum hér og þar. Fárveikt fólk með banvænan sjúkdóm á ekki að þurfa að bíða mánuðum saman eftir aðstoð. Úrræðaleysið er algjört og við þurfum að breyta því. Stjórnvöld og við öll verðum að skilja að þessir 80–100 einstaklingar sem látast úr þessum sjúkdómi á ári hverju eru fólk af holdi og blóði, fólk sem hefði getað lagt margt gott til samfélagsins, skapað margvísleg verðmæti ef sjúkdómurinn hefði ekki tekið völdin. Það er líka tímabært að við áttum okkur öll á því að markvissar aðgerðir, hvort sem er í forvörnum, meðferðarstarfi eða með eftirfylgni, geta dregið umtalsvert úr álagi á löggæslu, dómstóla, fangelsi, heilbrigðiskerfið og önnur velferðarkerfi okkar. Skynsamleg stefna til lengri tíma getur sparað samfélaginu peninga. Skýr stefna í áfengis- og vímuefnavörnum sendir skýr skilaboð um það að okkar veikasta fólk skipti máli. Það er ekki afgangsstærð eða jaðarhópur sem á minni rétt til heilbrigðisþjónustu en aðrir. Okkur ber skylda til þess að fækka þeim rauðu rósum sem lagðar eru á tröppur Alþingishússins af ástvinum þeirra sem látast úr þessum grafalvarlega sjúkdómi.