154. löggjafarþing — 50. fundur,  14. des. 2023.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands fyrir árin 2024--2028.

484. mál
[14:36]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands fyrir árin 2024–2028.

Í lögum um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, nr. 121/2008, er kveðið á um að ráðherra skuli fimmta hvert ár leggja fram tillögu til þingsályktunar á Alþingi um stefnu stjórnvalda um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands til fimm ára í senn þar sem fram komi markmið og áherslur í málaflokknum. Tillögunni er ætlað að marka þessa stefnu fyrir árin 2024–2028.

Í tillögunni kemur fram að stefna um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands fyrir árin 2024– 2028 byggist á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, Parísarsamkomulaginu um aðgerðir til að takast á við og bregðast við loftslagsbreytingum og öðrum alþjóðlegum sáttmálum sem Ísland hefur gerst aðili að, samþykkt eða fullgilt, auk alþjóðlegra skuldbindinga um fjármögnun þróunar. Aðild Íslands að Sameinuðu þjóðunum verði áfram einn helsti grundvöllur þróunarsamvinnu Íslands, og aðild að þróunarsamvinnunefnd Efnahags- og framfarastofnunarinnar, DAC, veiti faglega umgjörð um framkvæmdina. Þá kemur fram að alþjóðleg þróunarsamvinna verði áfram ein af meginstoðum íslenskrar utanríkisstefnu og lögð verði áhersla á að tryggja innbyrðis samræmi í utanríkis- og þróunarsamstarfi með tilliti til þeirra hnattrænu áskorana sem þjóðir heims standa frammi fyrir. Í því ljósi er brýnt að brugðist verði við víðtækum áhrifum og afleiðingum ólöglegs innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu fyrir það land, nærliggjandi ríki og fleiri lönd, þar á meðal fátækustu ríki heims.

Í áherslu- og markmiðskafla tillögunnar er kveðið á um að útrýming fátæktar, virðing fyrir mannréttindum og bætt lífsskilyrði verði yfirmarkmið alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands og grundvallist á framtíðarsýn heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Þá er kveðið á um að mannréttindi, jafnrétti kynjanna og umhverfis- og loftslagsmál verði bæði sértæk og þverlæg áhersluatriði sem lögð skuli til grundvallar í öllu starfi.

Samkvæmt tillögunni verður í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands lögð áhersla á samstarf við Malaví, Úganda og Síerra Leóne sem eru meðal allra fátækustu ríkja heims. Hvað fjölþjóðlegar stofnanir varðar verði áhersla á samstarf við Alþjóðabankann, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, Stofnun Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna og Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna og ýmsar fleiri stofnanir á sviði loftslagsmála og mannúðarmála.

Tillagan felur í sér að íslensk stjórnvöld styðji markmið Sameinuðu þjóðanna um að iðnríki skuli veita sem nemur 0,7% af vergum þjóðartekjum til þróunarsamvinnu. Með það í huga fari framlög Íslands úr 0,35% af vergum þjóðartekjum árið 2024 í 0,46% árið 2028. Ef svipaðri árlegri hækkun verður fram haldið munu íslensk stjórnvöld ná markmiði um 0,7% af vergum þjóðartekjum árið 2035. Sérstaklega er tilgreint að stuðningur íslenskra stjórnvalda við mannúðaraðstoð og uppbyggingu í Úkraínu verði ekki á kostnað fátækari ríkja og komi áfram til viðbótar við framlög til þróunarsamvinnu.

Skemmst er frá því að segja að það var mikill samhljómur í utanríkismálanefnd um að efla alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands og samstaða um þá stefnu sem hér er mörkuð fyrir árin 2024-2028. Þá lýsti nefndin ánægju sinni með það víðtæka samráð sem átti sér stað við mótun stefnunnar, samanber kafla þar um í greinargerð og upplýsingar sem fram komu við umfjöllun nefndarinnar.

Að framansögðu virtu leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt Ég vil að lokum þakka nefndarmönnum fyrir góða vinnu í málinu.

Undir nefndarálitið rita auk þeirrar sem hér stendur hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, Birgir Þórarinsson, Bjarni Jónsson, Jakob Frímann Magnússon, Jón Gunnarsson, Logi Einarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Þá lýsir Gísli Rafn Ólafsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, sig samþykkan álitinu.