154. löggjafarþing — 77. fundur,  22. feb. 2024.

fjölskyldusameining fyrir Palestínumenn frá Gaza og afstaða Ísraels til tveggja ríkja lausnar.

[10:52]
Horfa

utanríkisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Fyrst aðeins varðandi þá starfsmenn utanríkisþjónustunnar sem eru staddir í Egyptalandi núna vil ég byrja á því að segja að þetta er á allan hátt algjörlega einstök aðgerð. Ef við veltum því fyrir okkur að hér er um að ræða hóp sem á grundvelli fjölskyldusameiningar hefur fengið dvalarleyfi á Íslandi þá er þetta ekki eini hópurinn sem þannig er komið fyrir hjá í dag, heldur er fólk í Afganistan, í Venesúela, í Sýrlandi eru yfir 40 manns, ef ég man rétt, með sambærilega stöðu. Í engu tilviki höfum við verið að undirbúa það að fara og sækja fólk eða hjálpa því sérstaklega að komast út úr Afganistan, svo dæmi sé tekið, þó að sögulega séu dæmi um að við höfum hjálpað fólki sem hefur fengið stöðu hér í raun og veru á grundvelli þess að vera það sem við köllum kvótaflóttafólk. Við höfum hjálpað því með vegabréf og aðra slíka hluti. En vegna þeirrar hörmulegu stöðu sem er uppi á þessu svæði þá höfum við á undanförnum vikum, alveg síðan í desember, verið að gera okkur grein fyrir því hvaða reglur gilda um það að komast út af svæðinu og hvað aðrir hafa verið að gera. Það sem stendur upp úr í því er að aðrar þjóðir hafa fyrst og fremst verið að sækja eigin ríkisborgara og tryggja fjölskyldusameiningar við þá. Samhliða því hafa viðkomandi ríki í einstaka tilvikum hjálpað dvalarleyfishöfum út af svæðinu. Þess vegna gerist það þegar íslensk stjórnvöld leggja fyrir listann um fjölskyldusameiningar til Íslands að það vekur athygli stjórnvalda þarna úti að þar er ekki um neina ríkisborgara á Íslandi að ræða eða fjölskyldusameiningar við ríkisborgara. Þetta hefur orðið til þess að við höfum fengið þau skilaboð að þetta geti kallað á viðbótarathugun. (Forseti hringir.) En að sjálfsögðu er róið að því öllum árum að þessi aðgerð skili árangri. Við vonumst til þess að hún geti gert það. Um það snýst málið. (Forseti hringir.) Og á endanum erum við í því efni algerlega háð samstarfi og niðurstöðu, jákvæðri afgreiðslu, stjórnvalda á svæðinu.