154. löggjafarþing — 89. fundur, 20. mars 2024.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá forsætisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1116, um kostnað við auglýsingagerð, kynningarmál, viðburði og ráðstefnur, frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur.
Einnig hefur borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1238, um hatursorðræðu og kynþáttahatur, frá Brynju Dan Gunnarsdóttur.