154. löggjafarþing — 91. fundur,  22. mars 2024.

Störf þingsins.

[10:49]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Ég er kominn hingað til að reyna að vekja hæstv. innviðaráðherra til þess að hann fari nú að taka hendur úr vösum hvað varðar húsnæðisvandann og reyndar fleiri mál. Það vantar sárlega íbúðir en það er ekki að sjá að neitt sé að gerast nema þá að ráðherra setur upp íburðarmiklar glærusýningar, jafnvel fyrir næstu tvo, þrjá áratugina, en það sem liggur fyrir á kjörtímabilinu stenst ekki þessar langtímaáætlanir og er heldur langt frá því að uppfylla þá þörf sem blasir við þjóðinni.

Það er engin furða að það hægist á vegna þess að efnahagsstefnan og stefna Seðlabankans hefur verið að koma á okurvöxtum, sem hægir auðvitað á framkvæmdum þannig að það er farið að bíta í skottið á sér og veldur jafnvel aukinni verðbólgu, þetta vaxtaokur. Húsnæðisverð fer því hækkandi og ekki bæta úr skák hrakningar Grindvíkinga. Það hefur legið fyrir í dágóðan tíma að það þyrfti að finna lausn á vanda þeirra. Ríkisstjórnin er búin að leysa lítinn hluta vandans, þ.e. með uppkaupum í gegnum Þórkötlu, en hið augljósa stendur út af borðinu: Það vantar íbúðir, það vantar húsnæði en ekkert gerist. Margir hafa bent á að árið 1973 var hér gripið til sértækra aðgerða en nú, árið 2024, virðist innviðaráðherra vera alveg fyrirmunað að grípa til aðgerða. Það voru hér reist einingahús sem skreyta m.a. borgina og nágrannasveitarfélög. Ég tel að fyrir löngu hefði átt að vera búið að fara í aðgerðir af þessu tagi.

Það er rétt að velta upp hérna í lokin, herra forseti: Hvers vegna er það, hvar er þessi tregða hjá hæstv. innviðaráðherra við aðtaka hendur úr vösum? Er hann að gæta hagsmuna einhverra annarra en almennings? Er hann að gæta hagsmuna leigufélaga eða einhverja húsnæðisbraskara? Það er alveg augljóst (Forseti hringir.) að það var og er þannig að Framsóknarflokkurinn (Forseti hringir.) er kominn langt út af brautinni og fólkið er komið í síðasta sæti hjá hæstv. innviðaráðherra.