154. löggjafarþing — 96. fundur, 16. apr. 2024.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1192, um vistun barna í lokuðu búsetuúrræði, frá Katrínu Sigríði J. Steingrímsdóttur. Einnig hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1242, um hatursorðræðu og kynþáttahatur, frá Brynju Dan Gunnarsdóttur.