154. löggjafarþing — 101. fundur,  23. apr. 2024.

sviðslistir.

936. mál
[21:17]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Mig langaði bara að koma örstutt upp og hrósa hæstv. ráðherra fyrir þetta flotta mál og þakka fyrir það. Mér skilst að það sé gríðarleg sátt og samstaða innan listasamfélagsins alls um frumvarpið. Það er ótrúlega flott að sjá að þetta hafi verið unnið svona vel og í svo miklu samráði við þennan hóp. Ég tel þetta vera tímabært mál og jákvætt að við séum að setja fjármagn í þennan málaflokk og styrkja óperu á Íslandi. Fleiri orð ætla ég ekki að hafa um það.