varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá Oddnýju G. Harðardóttur og Hönnu Katrínu Friðriksson um að þær verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Guðný Birna Guðmundsdóttir, en 1. varamaður hefur boðað forföll, og 2. varamaður á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, María Rut Kristinsdóttir, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll.
Guðný Birna Guðmundsdóttir og María Rut Kristinsdóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnar velkomnar til starfa að nýju.