154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Á degi barnsins, þann 26. maí, var styrkjum úr Barnamenningarsjóði Íslands fyrir árið 2024 úthlutað. Sjóðurinn styrkir 41 verkefni í ár og er heildarupphæð úthlutunar rúmar 100 millj. kr. Þessir styrkir eru ótrúlega mikilvægir til að efla börn og ungmenni til þátttöku í menningarstarfi og styrkirnir sem verkefnin fara til hafa snertiflöt við mjög mörg heimili landsins. Sjóðurinn var stofnaður á aldarafmæli fullveldisins á hátíðarfundi Alþingis 18. júlí 2018. Hann styður fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Byggt er á áherslum menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.

Gróskan í barnamenningu blasti einmitt við okkur öllum í þættinum Sögur, verðlaunahátíð barnanna, sem sýndur var á RÚV síðastliðinn laugardag, þar sem börn verðlaunuðu það sem vel var gert í barnamenningu á Íslandi í beinni útsendingu. Sjóðurinn var festur í sessi á síðasta ári þegar Alþingi samþykkti þingsályktun hæstv. menningarmálaráðherra Lilju Alfreðsdóttur um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024–2028. Meðal verkefna sem fengu styrk í ár eru verkefni sem byggja á samstarfi við leik- og tónlistarskóla í Reykjavík, Akureyri og Ísafirði; Barnamenningarhátíð Vestfjarða, Púkinn 2025, og BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi. BRAS-hátíðin er haldin að hausti. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er uppspretta og verður hún samstarfsverkefni listafólks, stofnana, skóla og safna á Austurlandi auk þess sem komið hefur verið á samstarfi við Listaleypurin í Færeyjum og verður áhugavert að sjá hvert það samstarf leiðir. Einkunnarorð BRAS eru: Þora, vera, gera.