154. löggjafarþing — 130. fundur, 22. júní 2024.
varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá Andrési Inga Jónssyni og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttir um að þau verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í dag taka því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Pírata í Reykv. n., Valgerður Árnadóttir, en 1. varamaður hefur boðað forföll, og 4. varamaður á lista Pírata í Suðvest., Lárus Vilhjálmsson, en varamenn ofar á listanum hafa boðað forföll. Valgerður Bjarnadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.