03.03.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 714 í B-deild Alþingistíðinda. (525)

37. mál, Naust

Sigurður Hjörleifsson:

Mál þetta er mjög einfalt. Það er að ræða um samning milli Akureyrarkaupstaðar og hreppsins, sem Naust liggur í, um það, að jörðin gangi undir lögsagnarumdæmi Akureyrar. Eg vil gera þá tillögu, að málinu verði vísað til nefndarinnar, sem kosinn var til að íhuga frumv. um sölu Kjarna.