05.05.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í B-deild Alþingistíðinda. (1185)

162. mál, símskeytarannsókn

Björn Jónsson:

Símskeytin út af ráðherraskiftunum komu í staðinn fyrir einslegt samtal við konung, og þykir ekki hlýða að gera það heyrinkunnugt, en sama á að gilda um símskeytin. Eg er því virðulegum 1. þm. Eyf. (H. H.) samdóma um þetta mál.