09.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1378 í B-deild Alþingistíðinda. (1711)

62. mál, Herdísarvík

Flutnm. (Sigurður Sigurðsson):

Frumv. þetta er fram komið eftir ósk hreppsnefndarinnar í Selvogshreppi. Bréf hreppstjórans þar í hreppnum er prentað á sama þingskjali og frumv. sjálft, og geta menn lesið þar og kynt sér, hvað hann segir um málið, og hvað mælir með því, að löggilda Herdísarvík. Eg álít óþarft að fara fleiri orðum um frv., en vil mælast til, að því verði vísað til löggildinganefndarinnar.