11.03.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 1953 í B-deild Alþingistíðinda. (2361)

68. mál, gerðardómur í brunabótamálum

Hannes Hafstein:

Það er misskilningur hjá háttv. flutningsmanni (J. Ól.), að eg hafi haldið því fram, að vér mættum alls ekki setja lög um þetta efni. Eg sagði, að lögin yrðu haft á Íslendingum, bann gegn því, að skifta við önnur félög en þau, sem vilja ganga inn á skilyrðin. Spurningin er, hvort gera eigi fólki enn erfiðara með vátryggingar heldur en nú er, og eg tel hætt við því, að svo yrði í reynd með þessum ákvæðum.