25.04.1911
Neðri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 2119 í B-deild Alþingistíðinda. (2617)

140. mál, gjöf Jóns Sigurðssonar

Flutnm. (Jón Þorkelsson):

Það þótti ekki nógu skýrt fram tekið í fyrra hluta þessarar umræðu, að verðlaunin væru eigi að eins bundin við vísindaleg rit, heldur mætti og verja því til útgáfu slíkra rita, svo og heimildarrita. Þessu hefi eg bætt úr með brtill. mínum, og vona eg, að enginn ágreiningur verði um málið.