21.07.1914
Efri deild: 14. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 329 í B-deild Alþingistíðinda. (1827)

72. mál, hlutafélagsbanki

Júlíus Havsteen:

Hæstvirtur ráðherra er búinn að gjöra ítarlega grein fyrir ástæðum stjórnarinnar fyrir þessu máli við fyrstu umræðu þess, svo að mjer sýnist ekki ástæða til að fresta því fyrir þá sök að hann sje ekki við nú. Enn fremur er búið að rannsaka málið á fleiri fundum, svo að þessi umræða sýnist vel mega fara fram, þótt ráðherra mæti ekki á þessum fundi.